TILBOÐ

Hárþykkingar Sjampó og Hárþykkingar Hárnæring

7.990 kr 8.990 kr

Hárþykkingarsjampó og hárnæring.

Hárþykkingar sjampóið er sérstaklega framleitt fyrir fólk sem er með þunnt hár eða er að glíma við hárlos og lélegan hárvöxt. Innhaldsefnin hafa öll þann tilgang að auka hárvöxtinn og gera hárið þykkara og fallegra.

Hárþykkingarsjampóið frá Colway er með líffræðilega virku efni „diosmini“ sem eykur blóðfæði hársekkjanna, nærir þá og styrkir hárið frá rótinni. Með þessari nýstárlegu notkun „diosmins“ styrkist hárið þitt og þykknar.  Þú sér fljótt muninn.

Virknin
Diosmin veldur samdrætti og slökun í æðunum í rótum hársins, sem eykur blóðflæðið og næringu í hársekkjunum.  Þess vegna verður hárið sterkara, hárvöxtur eykst og hárlos minnkar. Diosminið sest í svitaholurnar í húðinni og verður eftir að loknum þvotti, þannig að þú þarft ekki að nota það á hverjum degi til að viðhalda virkni. 

Notkunarleiðbeiningar
Þvoðu hárið a.m.k. tvisvar í viku með sjampóinu.  Til þess að tryggja virkni skaltu nudda því í hársvörðinn í u.þ.b. tvær mínútur.  Varanleg áhrif eiga að verða ljós eftir tvo til þrjá mánuði.  Þessi tími er nauðsynlegur til þess að styrkja hárræturnar sem eru lifandi svo nýtt hár taki að vaxa.  Gott er að nota einnig hárnæringuna frá Colway til að tryggja hámarksárangur. .

Hárnæringin er sérstaklega hönnuð til þess að næra og þykkja þunnt og lélegt hár.  Innihaldsefnin eru öll sérvalin til þess að gera hárið þykkara, meira glansandi og fallegra.

Hárþykkingar hárnæringin frá Colway er einstök hárnæring sem stuðlar að þykkingu hársins.  Innihaldsefnin hafa jákvæð áhrif á ástand hársins í heild.  Það eru þrír megin fletir í hárinu.  Venjuleg hárnæring hefur yfirleitt aðeins áhrif á efsta lagið á hárinu, þ.e. það sem sést en þessi hárnæring hefur einnig áhrif á rótina og hársekkinn.  Strax við fyrstu notkun verður hárið meira glansandi og lítur heilbrigðara út.

Notkunarleiðbeiningar
Setjið lítið magn í blautt hárið og nuddið því inn í hársvörðinn og hárið í eina til tvær mínútur.  Skolið síðan úr með heitu vatni.  Notið hárnæringuna eftir hvern hárþvott.  Notið einnig hárþykkingarsjampóið frá Colway til að tryggja hámarksárangur.

aðrir keyptu líka þessar vörur

Aðrir skoðuðu þessar vörur líka